110.000 kr
110.000 kr
Orange Nobbler er lífleg og áberandi straumfluga sem vekur athygli fisksins með sterkum appelsínugulum lit og kvikri hreyfingu í vatninu. Nobbler-flugan á sér ekki langa sögu, en hún var hönnuð af Englendingnum Trevor Housby á áttunda áratug síðustu aldar. Þessi útfærsla á Nobbler sem hér birtist er kennd við hinn kunna veiðimann og fluguhnýtara Stefán Hjaltested. Sérkenni hennar er meðal annars að chenille-efnið í búknum er einnig krossvafið um þverhaus flugunnar, sem gefur henni sérstakt útlit og aukna hreyfingu í vatninu.